Silky terrier hundarnir Hera og Bóas

Munið gestabókina :)

06.10.2009 16:30:59 / úffar

Jæja

Þá er komið að haust sýningunni og við ættlum að sýna Bóas. Og við vitum að það á að sýna hana Prinsessu líka.



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2009 15:18:15 / úffar

Langt síðan síðast.

Núna um næstu helgi ættlum við að fara í útileigu ef veðrið leifir. Allir hafa það bara fínt og njóta veðurblíðunnar sem hefur verið hérna í bænum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 00:34:27 / úffar

Þá er komið að því

Um helgina munum við byrja að afhenda hvolpana úr þessu vel heppnaða goti, Prinsessa, Nói og Misty fara því brátt á nýju heimili sín þar sem þau munu vonandi verða ofdekruð og elskuð.
Við eigum eftir að sakna þeirra en við fáum vonandi að fylgjast eitthvað með þeim  :haha:
Hér eru svo myndir af þessum elskum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 17:11:08 / úffar

Tvöföld gleði í dag

Nú í dag aðfangadag á Hera líka afmæli og er hún 5ára.:d
Ég vil óska öllum gleðilegra jóla.
Venni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 00:46:59 / úffar

Einn hvolpur eftir fyrir þig

Rakkinn er enn óseldur svo ef einhver hefur áhuga þá er um að gera að hafa samband við okkur í síma 6640120

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 12:28:49 / úffar

Nammi namm

Hvolparnir fengu að smakka hvolpafóður í dag og voru bara spenntir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 15:52:59 / úffar

Búin að auglýsa

Auglýsing er kominn á mbl.is og fólk farið að hringja og koma að skoða.




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 00:03:36 / úffar

Hera feldlaus

Ég rakaði Heru alveg áðan, ég vona að hún verði ekki lengi að ná sér en feldurinn var orðinn hræðilegur og hvolparnir eru auðvitað að þæfa hana allan tíman meðan hún er að gefa þeim.
Hvolparnir eru að braggast vel, farnir að reyna að labba um enda eru þeir að verða þriggja vikna á morgun.
Venni rakari


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 20:57:04 / úffar

Þrír hvolpar

Ég verð að játa það að við erum ekki dugleg að nota þessa síðu.
En það sem er að frétta að það eru tvær tíkur og einn strákur fædd og þegar þetta er ritað rúmlega tveggja vikna.
Þetta got var ekki planað en er samt alveg hreint og verða hvolpar seldir í byrjun janúar, það verður auglýsing á mbl.is sett í loftið bráðum en þá má líka bara hafa samband við okkur strax vilji einhver taka frá hvolp.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 12:46:53 / úffar

Got væntanlegt.

Við eigum von á hvolpum bara núna á næstu dögum.

Kv. María


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 20:03:34 / úffar

Allt er gott sem endar vel.

Það fannst nýr eigandi fyrir hvolpin og allar því búnar að fá heimili. :d

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 19:52:48 / úffar

Allar farnar á ný heimili

Nú eru allar stelpurnar farnar á ný heimili.
Tara í Reykjavík, Trítla í Hafnarfjörð og Perla ætlar að búa alveg á Höfn í Hornafirði.
Þær voru heppnar og fá að búa hjá yndislegu fólki.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 12:27:37 / úffar

Stórar stelpur

Nú eru stelpurnar orðnar svo stórar að þær geta farið á ný heimili. Það er ein farin frá okkur og eigum við því tvær eftir.  Upplýsingar í síma 6969665 & 6640120.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 21:18:16 / úffar

Ömurlegur dagur....

O.k. hann var kannski ekki svo ómögulegur hjá öllum en klárlega sá versti í ævi hvolpana, því í dag voru þær hjá dýralækninum að fá sprautur og örmerkinguna.
Það var svo erfitt að hlusta á veinin í þeim, nálin er nefnilega alveg hlussu stór með örmerkingunni og ein varð að fá tvær stungur þar sem sendirinn virkaði ekki þegar inn var komið :| .
Núna eru þær semsagt alveg tilbúnar að fara á ný heimili svo við bara bíðum og sjáum hvað gerist.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 23:59:56 / úffar

Alveg að verða átta vikna

Það styttist í að við förum að láta skvísurnar, þær eru alveg að verða nógu gamlar.
Við erum búin að setja auglýsingu á mbl.is og höfum fengið nokkur símtöl. en samt eru nú tvær en ólofaðar.
Við erum oft með þær hlaupandi hér um allt hús og það er nú gauragangur þá því þær eru bókstaflega ofaní öllu og allstaðar, ein fékk nú örugglega fyrir hjartað í dag þegar hún þvældist upp á ryksuguvélmennnið okkar og kveikti óvart á því.:haha:


Ef einhver sem les þetta og langar að kaupa hvolp og koma að skoða þá er velkomið að hafa samband við okkur í síma 6640120 (Venni) 6969665 (María).




» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 32051
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012